01. febrúar 2026
Kvenfélagskaffið er líklega þekktasta framlag kvenfélaganna sem svíkur engan.
1. febrúar er dagur kvenfélagskonunnar.
Dagurinn er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands og var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar árið 2010 til að vekja athygli á starfi kvenfélagskvenna.
Hér í Rangárþingi ytra eru fimm kvenfélög sem öllum ber að þakka sitt mikilvæga og óeigingjarna starf í gegnum áratugina.
Takk kvenfélagskonur fyrir ykkar framlag. Sveitarfélagið sendir sínar bestu kveðjur í tilefni dagsins og hlakkar til að starfa áfram með ykkur í þágu samfélagsins.
Lista yfir kvenfélögin í okkar sveitarfélagi auk tengiliða má finna með því að smella hér.
Kvenfélögin taka nýjum meðlimum fagnandi svo við hvetjum allar áhugasamar konur til að kynna sér málið og taka þátt í gefandi og skemmtilegu starfi kvenfélaganna.