Taktu þátt í að einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga

Stjórnvöld óska eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga. Öll ráðuneyti í Stjórnarráðinu koma að verkefninu með tengingu við málaflokka sína en innviðaráðuneytið heldur utan um verkefnið. Allir eiga kost á því að senda inn tillögur og ábendingar í vefkönnun sem kynnt er í samráðsgátt stjórnvalda en frestur er til og með 10. mars nk.

Nánar má lesa um málið á vef stjórnarráðsins með því að smella hér.