Talþjálfun í Rangárþingi ytra

Í dag tekur til starfa Álfhildur Þorsteinsdóttir, talmeinafræðingur, sem hefur verið ráðin til sveitarfélagsins til að sinna talþjálfun barna á leik- og grunnskólaaldri. Álfhildur verður í 40% starfi og mun hafa aðsetur í leikskólanum Heklukoti á Hellu. Hún vinnur einnig á Skólaskrifstofu Suðurlands.

Talmeinafræðingur hefur aldrei áður starfað hjá sveitarfélaginu, þannig að hér er um nýtt starf að ræða sem verður fjármagnað að hluta með gjaldtöku. Þessi aukna þjónusta mun áreiðanlega koma mörgum fjölskyldum til góða, sem hingað til hafa þurft að sækja hana til Reykjavíkur með tilheyrandi kostnaði og vinnutapi.

Nánara fyrirkomulag varðandi tímapantanir og gjaldskrá verður kynnt síðar.

Álfhildur er boðin velkomin til starfa fyrir sveitarfélagið.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?