09. febrúar 2026
Rangárþing ytra hvetur garðeigendur til að bregðast við og klippa tré og limgerði þar sem þörf er á. Núna er góður árstími og skilyrði til að fara í málið.
Gróður má ekki ná út fyrir lóðarmörk og má ekki hindra vegfarendur, hylja umferðarskilti né draga úr götulýsingu.
Einnig þurfa snjóruðningstæki að komast óhindrað um á þeim dögum sem trjágreinar slúta undan snjóþunga.
Þarft þú að grípa til aðgerða?
Þessi atriði þurfa að vera í lagi:
- Gróður þarf að vera innan lóðarmarka.
- Umferðarmerki verða að vera sýnileg.
- Gróður má ekki byrgja götulýsingu.
- Gangandi og hjólandi þurfa að eiga greiða leið um gangstíga.
- Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar.
- Þar sem sorphirðubílar þurfa að komast eftir stétt eða stíg má gróður ekki vera neðar en 4,2 metrar, sambærilegt við akbraut.
Garðeigendur bera ábyrgð á sínum gróðri.
Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra
Sími: 4875284