Þekktu rauðu ljósin
Soroptimistar hafna ofbeldi. Sextán daga alþjóðlegt átak gegn ofbeldi hefst í dag 25.nóvember og stendur til 10.desember. Yfirskriftin í ár er "Þekktu rauðu ljósin“ og er tengt við slagorð SIE (Soroptimist International Europe) „Read the Signs“.
 
Roðagylltur litur er tákn átaksins og allir hvattir til að halda því á lofti með einum eða öðrum hætti, við gerum það með því að flagga roðagylltum fána við Miðjuna á Hellu. 
 
Áherslan í ár felst í fræðslu um hvernig koma megi auga á og stöðva ofbeldi í nánum samböndum. Þessi fræðsla þarf að koma fyrir sjónir almennings m.a. með milligöngu Soroptimista með því að deila þeim fróðleik sem þegar er til hér á landi um þetta mikilvæga málefni. 
 
Nánari upplýsingar má sjá með því að smella hér. 
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?