Þekktu rauðu ljósin - forvarnarátak

Þann 25. nóvember til 10. desember fer fram árlegt 16 daga átak Sorptimistasambands Íslands gegn kynbundnu ofbeldi.

Þetta átak byrjar á alþjóðlegum degi Sameinuðu Þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi 25. nóvember og kallast „Þekktu rauðu ljósin“. 

Átakið endar á alþjóðadegi Soroptimista 10. desember.

Áherslan er áfram á mikilvægi þessa að við öll tökum höndum saman og lærum að þekkja viðvörunarbjöllurnar.

Af þessu tilefni flaggar sveitarfélagið appelsínugulum fána til að vekja athygli á þessu mikilvæga átaki.

Nánari upplýsingar um átakið eru á heimasíðu Soroptimistasambands Íslands, https://www.soroptimist.is/