Svona er gert ráð fyrir að ásýnd hússins verði frá norð-vesturhlið // Mynd frá Landsvirkjun
Svona er gert ráð fyrir að ásýnd hússins verði frá norð-vesturhlið // Mynd frá Landsvirkjun

Landsvirkjun hefur auglýst útboð vegna byggingar þjónustuhúss að Faxaflötum 2a á Hellu. Húsið mun gegna mikilvægu hlutverki sem þjónustumiðstöð fyrir Vaðölduver. Auk starfsfólks frá vindmylluframleiðandanum Enercon mun starfsfólk Landsvirkjunar einnig hafa aðstöðu í húsinu. Byggingaráformin hafa þegar hlotið afgreiðslu hjá byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.

Útboðsgögn voru afhent 9. mars 2026 og er skilafrestur tilboða 21. apríl 2026. Heildarstærð aðalbyggingarinnar er um 414 fermetrar en þar verður m.a. að finna skrifstofurými, fundarherbergi, kaffiaðstöðu og bílskúr. Á lóðinni, sem er 9.185 fermetrar að stærð, verður einnig lágreist 46 fermetra skýli sem skiptist í 25 fermetra hjólaskýli og 21 fermetra geymslu. Húsið mun verða Svansvottað og verða þar með annað mannvirki Landsvirkjunar sem hlýtur slíka vottun.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir við byggingu hússins vorið 2026. Mannvirkið er mikilvægur þáttur í uppbyggingu innviða fyrir rekstur Vaðölduvers og mun styðja við daglega þjónustu, samvinnu og aðstöðu starfsfólks sem kemur að verkefninu.

Hér má nálgast tengil á útboðsvefinn.