Ásbjörg Kristinsdóttir, Eggert Valur Guðmundsson og Magnús Þór Magnússon taka fyrstu skóflustungurna…
Ásbjörg Kristinsdóttir, Eggert Valur Guðmundsson og Magnús Þór Magnússon taka fyrstu skóflustungurnar.

Fyrsta skóflustunga að nýju þjónustuhúsi Landsvirkjunar á Hellu var tekin þann 6. maí sl.

Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, tók skóflustunguna fyrir hönd Landsvirkjunar, Eggert Valur Guðmundsson, oddviti sveitarstjórnar Rangárþings ytra fyrir sveitarfélagið og Magnús Þór Magnússon, framkvæmdastjóri Aleflis, fyrir hönd verktaka.

Húsið mun þjóna starfsemi tengdri Vaðölduveri, fyrsta vindorkuveri Íslands, og markar mikilvægt skref í uppbyggingu innviða fyrir rekstur vindorku hér á landi.

Í þjónustuhúsinu verður aðstaða fyrir starfsfólk Enercon, framleiðanda vindmyllanna í Vaðölduveri, auk starfsstöðvar Landsvirkjunar. Þar verða jafnframt verkstæði og geymslur fyrir varahluti í vindmyllurnar.

Enercon hefur þegar ráðið íslenskt starfsfólk til að sinna viðhaldi vindmyllanna 28 sem rísa í Vaðölduveri. Starfsfólkið hefur hlotið umfangsmikla starfsþjálfun víða um Evrópu og kemur heim með sérhæfða þekkingu á rekstri og viðhaldi vindorkuvirkjana.

Samkvæmt samningi Landsvirkjunar og Enercon mun fyrirtækið annast viðhald vindmyllanna fyrstu 15 ár reksturs Vaðölduvers.

Verktakafyrirtækið Alefli átti hagstæðasta tilboðið í byggingu þjónustuhússins og er heildarkostnaður framkvæmdarinnar áætlaður um hálfur milljarður króna. Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið haustið 2027 þegar Vaðölduver verður komið í fullan rekstur.

Þjórsár- og Tungnaársvæðið er stærsta orkuvinnslusvæði Landsvirkjunar, þar sem fyrirtækið rekur sjö vatnsaflsvirkjanir. Þá hefst bygging Hvammsvirkjunar á næsta ári, auk þess sem Vaðölduver verður fyrsta vindorkuver landsins.

Bygging þjónustuhússins styrkir því enn frekar starfsemi Landsvirkjunar á Suðurlandi og styður við uppbyggingu nýrrar þekkingar og sérhæfðra starfa á sviði endurnýjanlegrar orku.