Tilkynning frá Veitum

Nú hefur heitavatnslögnin sem færir ykkur varmann bilað þar sem hún liggur yfir Ytri-Rangá bilað tvisvar á stuttum tíma. Næstu daga munum Veitur endurnýja hana. Því fylgir einhver röskun á umferð og einnig þarf að loka fyrir heita vatnið næsta miðvikudag.

Dagana 15.-16. og 19.-20. nóvember verður undirbúningsvinna í gangi og önnur akgreinin lokuð í nokkrar klukkustundir á dag. Því gæti hægst á umferð um brúna.

Miðvikudaginn 21. nóvember verður gamla lögnin fjarlægð og nýja lögnin hífð á sinn stað. Þá annarri akgreininni lokað allan daginn og fyrir alla umferð með hléum. Þetta gætu orðið nokkrar 30-40 mínútna lokanir sem dreifast yfir daginn eftir því hvernig verkinu miðar. Þennan dag verður lokað fyrir heita vatnið á svæðinu frá Rauðalæk til og með Hvolsvelli. Lokað verður kl. 13:00 og gert er ráð fyrir að heita vatnið verði aftur farið að streyma fyrir miðnætti.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?