Tilkynning um úrræði fyrir eigendur húsa vegna lokunar eldra hesthúsahverfis á Hellu

Yfirstandandi er ferli við lokun eldra hesthúsahverfis við Hesthúsveg á Hellu. Nýtt deiliskipulag fyrir hesthúsahverfi á Rangárbökkum tók gildi árið 2015 samhliða því að fyrirhugað var að hið eldra hesthúsahverfi viki til framtíðar fyrir íbúðabyggð.

Árið 2021 kynnti sveitarfélagið sérstakt átaksverkefni um flutning í nýtt hesthúsahverfi þar sem eigendum stóðu ákveðnir valkostir til boða um uppkaup sveitarfélagsins á húsum í hverfinu. Markmið verkefnisins var að hús í eldra hesthúsahverfinu yrðu fjarlægð fyrir ársok 2026 og fagnar sveitarfélagið því hversu vel hefur gengið að ná samkomulagi við eigendur húsa í hverfinu samhliða uppbyggingu nýs hverfis við Rangárbakka.

Til þess að stuðla að farsælli framkvæmd lokunar hverfisins, með þeim hætti að komið sé að jöfnu til móts við eigendur húsa í hverfinu, vill sveitarfélagið koma á framfæri eftirfarandi leiðbeiningum og upplýsingum um þau úrræði sem standa nú til boða fyrir eigendur húsa í hverfinu.

Úrræði fyrir eigendur húsa sem sveitarfélagið hefur gert kaupsamninga um

A. Frestun á afhendingu eldra húss:

Umsókn um frestun á afhendingu húss í eldra hverfinu á meðan unnið er að því að ljúka þegar höfnum framkvæmdum við nýtt hús í nýja hverfinu og taka það í notkun. Hámarksfrestur er veittur til 30. júlí 2028. Frestur er veittur með undirritun viðbótarsamkomulags ef skilyrði eru uppfyllt.

B. Framlenging á fresti til byggingar grunns:

Umsókn um framlengingu á fresti til byggingar grunns að nýju húsi í nýja hverfinu til allt að 30. júlí 2028. Skilyrði er að lögð sé fram staðfesting á að sótt hafi verið um byggingarheimild eða byggingarleyfi. Frestur er veittur með undirritun viðauka við kaupsamning ef skilyrði eru uppfyllt.

C. Heimild til kaupa á eignarhlut í húsi á Rangárbökkum í stað nýbyggingar á Rangárbökkum:

Umsókn um heimild til að kaupa eignarhlut í húsi í nýja hverfinu gegn heildargreiðslu 50.000 kr./m² samkvæmt kaupsamningi, án þess að byggja nýtt hús á áður úthlutaðri lóð. Réttur til úthlutaðrar lóðar fellur niður. Skilyrði er að undirritaður og þinglýstur kaupsamningur um eignarhlut í nýju húsi á Rangárbökkum liggi fyrir. Hús í eldra hverfi afhendist eigi síðar en 30. júlí 2028. Ef skilyrði eru uppfyllt er viðauki við kaupsamning undirritaður og greiðsla seinni helmings kaupverðs (25.000 kr./m² uppreiknað) fer fram samhliða formlegri afhendingu húss og útgáfu afsals.

D. Afsal gefið út án frekari uppbyggingar:

Afsal gefið út án viðbótargreiðslu í samræmi við kaupsamning. Heildarverð nemur þá 25.000 kr./m² (upphafleg greiðsla), líkt og í kaupsamningum án uppbyggingar í nýju hverfi.

 Úrræði fyrir eigendur húsa sem sveitarfélagið hefur ekki gert kaupsamninga um og/eða eigendur hafa fengið senda uppsögn á lóðarleigusamningi

A. Sala án uppbyggingar í nýju hverfi:

Sveitarfélagið kaupir hús í eldra hesthúsahverfinu á 25.000 kr./m² (uppreiknað). Afhending húss og útgáfa afsals fari fram eigi síðar en 30. júlí 2028.

B. Sala með nýbyggingu á úthlutaðri lóð:

Sveitarfélagið kaupir hús í eldra hesthúsahverfinu á 50.000 kr./m² (uppreiknað) á eftirfarandi forsendum:

    • 50% kaupverðs greiðast við undirritun kaupsamnings.
    • 50% kaupverðs greiðast samhliða útgáfu afsals og afhendingu húss eigi síðar en 30. júlí 2028, gegn því að grunnur nýs hesthúss í nýja hverfinu sé tilbúinn. Hætti seljandi við byggingu nýs húss fellur síðari greiðslan niður og vilyrði fyrir lóð.
    • Sveitarfélagið veitir styrk sem nemur álögðu gatnagerðargjaldi vegna hinnar nýju lóðar.

C. Sala með kaupum á eignarhlut í nýju húsi á Rangárbökkum:

Sveitarfélagið kaupir hús í eldra hesthúsahverfinu á 50.000 kr./m² (uppreiknað) á eftirfarandi forsendum:

    • 50% kaupverðs greiðast við undirritun kaupsamnings.
    • 50% kaupverðs greiðast samhliða útgáfu afsals og afhendingu húss eigi síðar en 30. júlí 2028, þegar fyrir liggur undirritaður og þinglýstur kaupsamningur um kaup seljanda á eignarhlut í nýju hesthúsi í nýja hverfinu.

D. Synjun eða vanræksla á samkomulagi:

Náist ekki samkomulag á grundvelli framangreindra kosta fyrir 15. desember 2026, skulu eigendur fjarlægja hús sín og skila lóðum fyrir lok uppsagnarfrests, sem í flestum tilfellum miðast við 30. júní 2029 eða 31. desember 2029 í samræmi við lóðaleigusamninga, en í einhverjum tilvika rennur uppsagnarfrestur út 31. desember 2026.

 Almennir skilmálar og forsendur

  • Fermetrafjöldi:

Útreikningur á fermetrafjölda húsa miðast við skráð birt flatarmál samkvæmt fasteignaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

  • Vísitölutenging:

Allar tilgreindar fjárhæðir miðast við vísitölu byggingarkostnaðar í júní 2022 (grunnvísitala 842,4 stig) og skulu uppreiknast samkvæmt henni til greiðsludags. Fyrir þá sem þegar hafa móttekið fyrri greiðslu kaupverðs uppreiknast einungis síðari greiðslan.

  • Gatnagerðargjöld og lóðir:

Niðurfelling eða styrkur vegna gatnagerðargjalds á einungis við um sjálfstæða úthlutun nýrra lóða, en fylgir ekki kaupum á eignarhlutum. Við kaup á eignarhlut fellur fyrri réttur til úthlutaðrar lóðar niður og skal henni skilað óheftri til sveitarfélagsins.

  • Rekstrarkostnaður og ábyrgð:

Eigandi ber allan rekstrarkostnað af húsi í eldra hverfinu (þ.m.t. fasteignagjöld, lóðaleigu, tryggingar, rafmagn og hita) fram að formlegri afhendingu eignar eða útgáfu afsals. 

Eigendur skulu tilkynna um val á úrræði með því að undirrita og skila þar til gerðu eyðublaði til sveitarfélagsins eigi síðar en 15. desember 2026. Eftir þann tíma standa framangreind úrræði og samningar ekki lengur til boða.

Bent er á að eigendum húsa í hesthúsahverfinu við Hesthúsveg verður send sérstök tilkynning vegna málsins í gegnum island.is í byrjun desembermánaðar.

Beina skal umsóknum og fyrirspurnum vegna málsins til undirritaðs á netfangið eirikur@ry.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins merkt "V/hesthúsvegur b.t. sveitarstjóra". 

Umsóknareyðublað er aðgengilegt hér. 

Eiríkur Vilhelm Sigurðarson,
sveitarstjóri Rangárþings ytra