Tilkynning vegna leikskólastarfs næstu daga

Stjórnendur hjá Rangárþingi ytra og Odda bs funduðu fyrr í dag í kjölfar ákvarðana sóttvarnaryfirvalda um hertar samkomutakmarkanir. Ákveðið var að senda út eftirfarandi skilaboð:
Hafi foreldrar eða forráðamenn tök á að hafa börn sín heima í stað þess að þau séu í leikskóla þá er óskað eftir því að leikskólanum sé tilkynnt um það sem fyrst.

Vistunargjöld í leikskóla munu verða felld niður þann tíma sem foreldrar eru með börn sín heima.

Fólk er hvatt til að fylgjast vel með á Karellen og tölvupósti vegna nýrra tilkynninga.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?