Tilkynning vegna óveðurs - skólahald fellur niður á mánudag

Uppfært kl 11:45 7.2.2022

Grunn – og leikskólar verða lokaðir í dag eins og tilkynnt var í gær en aðrar stofnanir sveitarfélagsins eru opnar frá og með hádegi. Snjómokstur er í gangi á Hellu og er að fara af stað út um sveitir.

--

Gefin hefur verið út rauð viðvörun vegna óveðurs sem ganga mun inn á landið í nótt. Vegna þessa fellur allt skólahald leik- og grunnskóla niður mánudaginn 7. febrúar, bæði á Laugalandi og Hellu. Aðrar stofnanir sveitarfélagsins verða lokaðar til hádegis en staðan verður að sjálfsögðu endurmetin eftir því sem fram vindur. Snjómokstri í þéttbýli og á heimreiðum verður ekki sinnt fyrr en veðrið gengur niður.

Íbúar eru hvattir til að festa lausamuni, svo sem ruslatunnur og annað lauslegt. Þá eru verktakar beðnir að huga að frágangi á byggingarsvæðum. Fólk er hvatt til að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu á meðan veðrið gengur yfir. Gert er ráð fyrir að talsverð úrkoma muni fylgja sem geti verið á formi snjókomu og/eða rigningar. Vænta má mikillar ófærðar og hálku á vegum og að talsverðan tíma geti tekið að opna vegi eftir að veðrinu slotar. Íbúar eru jafnframt hvattir til að fylgjast vel með tilkynningum um veður og færð.

Beiðnum um aðstoð skal beint í síma 112 og verða svæðisstjórn björgunarsveita og aðgerðastjórn almannavarna á vaktinni.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?