Tímamót í samstarfi sveitarfélaganna

Tímamót í samstarfi sveitarfélaganna

Sveitarstjórnir Ásahrepps og Rangárþings ytra samþykktu samhljóða nýtt Rammasamkomulag um samstarf sveitarfélaganna með samþykktum fyrir þrjú byggðasamlög auk þjónustusamninga og  samstarfssamninga á fundum sínum nú þann 9. desember síðastliðinn. Samkomulagið markar veruleg tímamót hjá sveitarfélögunum því samstarfið nær til allra meginþátta í starfsemi þeirra.

Til að fagna þessum merka áfanga þá boðuðu sveitarfélögin til sérstakrar undirritunarhátíðar í Menningarhúsinu á Hellu þriðjudaginn 15. desember  kl. 17:00 að viðstöddu starfsfólki og stjórnum sameiginlegra verkefna.

Undanfarið ár hefur sérstök  viðræðunefnd sveitarfélaganna unnið að þessari endurskoðun samninganna og útfærslu þeirra og skilaði fullmótuðum tillögum til sveitarstjórnanna sem nú hafa verið samþykktar. Viðræðunefndin hefur á tímabilinu haldið 25 nefndarfundi og staðið fyrir tveimur sameiginlegum  íbúafundum fyrir Ásahrepp og Rangárþing ytra, þann 9. maí á Laugalandi og 31. október í Menningarhúsinu á Hellu. Í tengslum við íbúafundina voru skýrslur og skjöl gerð aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna með opnum aðgangi fyrir alla. Þá voru haldnir kynningarfundir með starfsfólki og stjórnum þeirra stofnana sem breytingarnar snerta með beinum hætti. Þannig var fundað með starfsfólki allra skóla þann 6. október. Þá hefur vinna viðræðunefndarinnar verið kynnt reglulega á fundum samráðsnefndar sveitarfélaganna sem hisst hefur á 8 fundum frá því vinna við endurskoðun samninga sveitarfélaganna hófst þann 11. desember 2014. Samráðsnefndin samanstendur af fullskipuðum sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps. Allar fundargerðir nefndanna hafa verið aðgengilegar á heimasíðum sveitarfélaganna jafnóðum. Fullyrða má því að tillögur nefndarinnar hafi fengið mikla umræðu og hafi verið lagðar fram að vel athuguðu máli til afgreiðslu í sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps.

 

Rammasamkomulag

Samkomulagið tekur til allra tvíhliða samstarfsverkefna sveitarfélaganna og verkefna þar sem ríkið er þriðji aðili. Tilgangur samkomulagsins er að skapa skýran ramma um samstarfið, auðvelda stjórnun verkefna og ákvarðanatöku og búa samstarfsverkefnum traustan og hagfelldan grunn. Markmiðið er að veita íbúum beggja sveitarfélaga eins góða þjónustu og frekast er unnt miðað við þá fjármuni sem veitt er í viðkomandi málaflokka. Með samkomulaginu þá eru öll samstarfsverkefni Rangárþings ytra og Ásahrepps rekin innan vel skilgreindra byggðasamlaga, með þjónustusamningum eða samstarfssamningum eftir því sem hentar best í hverju tilviki og þannig að umgjörð og verklag við rekstur verkefnanna uppfylli lagaskilyrði um samstarf sveitarfélaga sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um samvinnu sveitarfélaga og samninga um starfrækslu verkefna. 

 

Byggðasamlög

Með samkomulaginu eru rekin þrjú byggðasamlög um ákveðin samstarfsverkefni. Þannig er starfrækt Húsakynni bs.,byggðasamlag um allar sameiginlegar fasteignir sveitarfélaganna;  Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps bs., byggðasamlag um eignir og rekstur sameiginlegrar vatnsveitu sveitarfélaganna; og Oddi bs.sem er deildaskipt byggðasamlag um rekstur leik- og grunnskóla sveitarfélaganna, þ.e. Leikskólann Laugalandi, Heklukot Hellu, Laugalandsskóla og Grunnskólann Hellu. Byggðasamlögin starfa öll eftir staðfestum samþykktum eins og lög gera ráð fyrir og  uppfylla lagaákvæði um byggðasamlög sbr. 94. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

 

Þjónustusamningar

Innan ramma samkomulagsins eru í gildi sérstakir þjónustusamningar. Um er að ræða þjónustusamning milli sveitarfélaganna um rekstur frístunda- og sumarverkefna barna og unglinga og félagsmiðstöð; rekstur gámaplans og umsjón með snjómokstri; umsjón og rekstur íþróttamannvirkja; og umsjón með fasteignagjöldum, sameiginlegum mannvirkjum og landi og  fjallskilamálum á Holtamannaafrétti. Þá eru einnig í gildi þjónustusamningar milli byggðasamlaganna þriggja og Rangárþings ytra um bókhald og fjármálaumsýsla, fasteignaumsjón og rekstur og umsjón með verklegum framkvæmdum.

 

Aðrir samningar

Einnig eru sérstakir samstarfssamningar milli sveitarfélaganna um fjarskiptainnviði og uppbyggingu ljósleiðarakerfis og sameiginlegur samningur sveitarfélaganna við sóknarnefnd Oddakirkju um nýtingu og rekstur Menningarhússins á Hellu. Að auki koma sveitarfélögin sameiginlega að rekstri Lundar, hjúkrunarheimilis ásamt ríkinu.

 

Stjórnun og eftirlit

Samstarfsnefnd sveitarfélaganna fer með eftirlit með framkvæmd samningsins og skal m.a. undirbúa sérstakan samráðsdag í maí á hverju ári þar sem farið er yfir stöðu allra verkefna og er hann opinn öllum íbúum sveitarfélaganna. Samstarfsnefndin skal skila sameiginlegri ársskýrslu til beggja sveitarstjórna og skulu sveitarstjórar beggja sveitarfélaganna annast undirbúning hennar.

 

Frekari upplýsingar um samningana má finna á heimasíðum sveitarfélaganna www.asahreppur.is og www.ry.is t.d. undir www.ry.is/efni/skipurit_og_skýrslur

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?