Töðugjöld verða haldin dagana 11.–16. ágúst næstkomandi og er undirbúningur hátíðarinnar nú í fullum gangi. Dagskráin er óðum að taka á sig mynd en það er þegar ljóst að Töðugjaldavikan verður fjölbreytt og skemmtileg fyrir fólk á öllum aldri.
Meðal þess sem fyrirhugað er í vikunni er ganga með Ferðafélagi Rangæinga , Töðugjaldahlaupið og ýmislegt fleira skemmtilegt sem kynnt verður þegar nær dregur.
Á föstudeginum fer hið sívinsæla Þorpararölt fram. Þar gefst gestum tækifæri til að rölta um hverfið, njóta veitinga og góðrar stemningar með heimafólki. Litaskiptingu hverfanna má sjá hér að neðan.
Fjölskyldudagskrá og markaður á laugardeginum
Laugardagurinn 15. ágúst hefst með hinum klassíska Töðugjaldamorgunverði í íþróttahúsinu á Hellu frá klukkan 10:00–12:00. Markaður verður jafnframt haldinn í íþróttahúsinu frá klukkan 10:00–16:00.
Barnadagskráin hefst klukkan 12:00 og verður í umsjón Gunna og Felix. Lína langsokkur kemur í heimsókn, hæfileikakeppnir barna og dýra verða á sínum stað og listasmiðja verður opin fyrir unga listamenn.
Á svæðinu verður einnig tækja- og bílasýning, hoppukastalar, Wipeout-braut og matarvagnar. Ennþá er verið að hnýta síðustu hnúta og því mögulegt að enn bætist við skemmtun dagsins.
Kvölddagskráin færist á Rangárbakka
Stærsta breytingin á Töðugjöldum í ár er sú að kvölddagskrá laugardagsins færist yfir á Rangárbakka.
Gunni og Felix stýra dagskránni og skemmta áhorfendum, sveitarstjóri flytur ávarp og einvala hópur listamanna kemur fram. Herra Hnetusmjör, Bjartmar Guðlaugsson og KK verða meðal þeirra sem stíga á svið og Guðrún Árný stýrir brekkusöng.
Á sunnudag fáum við svo heimsókn frá leikhópnum Lottu ásamt fleiri skemmtilegheitum.
Hátíðin verður nánar kynnt eftir því sem nær dregur og er það því full ástæða til að taka dagana 10.–16. ágúst frá og fylgjast vel með.
Töðugjöld 2026 stefna í að verða sannkölluð hátíðarvika í Rangárþingi ytra.