18. febrúar 2026
Töðugjöld verða haldin að venju í ágúst og nú er verið að undirbúa og bóka atriði.
Aðalhátíðardagurinn verður laugardaginn 15. ágúst en öll vikan er opin fyrir viðburði og skemmtun.
Vilt þú koma fram, benda á einhvern snilling eða ertu með góða hugmynd?
Okkur langar að auglýsa sérstaklega eftir áhugasömum aðilum úr heimabyggð sem langar að koma fram eða halda viðburð í tengslum við Töðugjöld.
Fjölbreytni er fagnað og hvort sem um er að ræða listir, menningu, handverk, íþróttir eða annað viljum við endilega heyra frá ykkur!
Hafið endilega samband með því að smella hér og fylla út eyðublaðið.
Einnig er hægt að senda póst á ry@ry.is.