Tónlistarskóli Rangæinga fagnar 70 ára afmæli

Tónlistarskóli Rangæinga varð 70 ára þann 19. október síðastliðinn og verður þessum merku tímamótum fagnað með stórum afmælistónleikum föstudaginn 13. nóvember kl. 17:30 í íþróttahúsinu í Þykkvabæ.

Allir nemendur skólans koma fram á tónleikunum í fjölbreyttum samspilsatriðum og verður þema kvöldsins kvikmyndatónlist.

Öllum er hjartanlega velkomið að koma og fagna 70 ára afmæli Tónlistarskóla Rangæinga með nemendum og starfsfólki skólans.