Tvær eignir sveitarfélagsins komnar á sölu
Fasteignirnar að Þrúðvangi 18 og Útskálum 1 á Hellu hafa nú verið auglýstar til sölu. Báðar eignirnar eru í eigu Rangárþings ytra og eru til sölu hjá Fannberg fasteignasölu. Auglýsingar um eignirnar voru birtar 18. september.

Áður hafði verið samþykkt að setja báðar eignirnar í söluferli. Sala Útskála 1 var samþykkt í byggðarráði í maí og samhliða var ákveðið að vinna að breytingu á landnotkun lóðarinnar aftur í íbúðarsvæði. Sveitarstjórn samþykkti þann 9. september tillögu byggðarráðs um að Þrúðvangur 18 færi í söluferli.

Eignirnar eru:

  • Þrúðvangur 18 – 159,6 m² atvinnuhúsnæði, byggt árið 1970. Húsnæðið hefur síðustu ár verið nýtt í tengslum við leikskólastarf og var endurbætt á árunum 2018–2019.
  • Útskálar 1 – 136 m² einbýlishús, byggt árið 1964. Húsið var upphaflega byggt sem skólastjórabústaður og hefur verið nýtt undir skólastarf frá árinu 2006.

Nánari upplýsingar um eignirnar, myndir og upplýsingar um fyrirkomulag sölu má finna í fasteignaauglýsingunum.

Skoða Þrúðvang 18 á fasteignir.is
Skoða Útskála 1 á fasteignir.is