Umf Hekla Héraðsmeistari í skák 16 ára og yngri

Umf Hekla Héraðsmeistari í skák 16 ára og yngri

Laugardaginn 22.2.2014 fór fram Héraðsmót HSK í skák í Grunnskólanum á Hellu. 30 keppendur tóku þátt og komu þeir frá 4. Félögum. Keppnin fór val fram og var bæði jöfn og skemmtileg og er mót þetta vonandi komið til með að vera, sem er full þörf fyrir. Sérstaklega var keppnin í yngsta flokknum 10 ár og yngri skemmtileg og spennandi þar sem þrír efstu menn urðu jafnir með 5. vinninga af 6. mögulegum, var stigareikningur síðan látin ráða niðurröðun keppenda. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:

10 ára og yngri

1. Gunnar Guðmundsson Umf.Hekla 5. Vinningar

2. Anton Fannar Kristinsson Umf.Hekla 5. Vinningar

3. Martin Patryk Srichakam Umf.Hekla 5. Vinningar

11-13 ára

1. Almar Máni Þorsteinsson Umf.Hekla 5. Vinningar

2. Heiðar Óli Guðmundsson Umf.Hekla 4. Vinningar

3. Gunnheiður Guðmundsdóttir Umf.Hekla 3. Vinningar

14-16 ára

1. Axel Guðmundsson Dímon 1. Vinningur

2. Jana Lind Ellertsdóttir Garpur 0. Vinningur

Stigakeppni félaga

Umf.Hekla 34 Stig

Dímon 8 Stig

Garpur 7 Stig

Þjótandi 4 Stig

Skoðið fleiri fréttir á umfhekla.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?