Umf Hekla með tvo Íslandsmeistaratitla í borðtennis

Um liðna helgi fór fram Íslandsmeistaramót unglinga í borðtennis í KR-heimilinu, Reykjavík og sá borðtennisdeild KR um framkvæmd mótsins. Umf Hekla átti þar 2 keppendur,  þá Aron Birkir Guðmundsson og Þorgils Gunnarsson. Varð Þorgils Íslandsmeistari í einliðaleik og urðu þeir félagar Íslandsmeistarar í tvíliðaleik í flokki 12-13 ára pilta. Stórglæsilegur árangur hjá þeim félögum sem þeir geta verið stoltir af.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?