Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra 2012

Fimmtudaginn 12. júlí voru umhverfisverðlaun Rangárþings ytra veitt við hátíðlega athöfn í Miðjunni á Hellu. Samgöngu-, umhverfis- og hálendisnefnd Rangárþings ytra veitir verðlaunin árlega og er þeim skipt upp í fjóra flokka.

Umhverfisverðlaun fyrir fallegan garð þéttbýli árið 2012 fengu Theresa Lisbeth Sundberg og Kristinn Scheving en þau búa að Ártúni 6 á Hellu.

Umhverfisverðlaun fyrir snyrtilegt lögbýli, þar sem stundaður er landbúnaður, fengu þau Sverrir Haraldsson, Guðmundur Gíslason og Björk Rúnarsdóttir sem eru ábúendur á Selsundi á Rangárvöllum.

Að lokum fengu ábúendur að Stokkalæk á Rangárvöllum, Inga Ásta Hafstein og Pétur Kr. Hafstein og Selið, sem þau hjón reka á Stokkalæk, umhverfisverðlaun fyrir fallega lóð í dreifbýli og fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis.

Verðlaunahafar munu hafa opið fyrir gesti laugardaginn 21. júlí frá kl. 13-16.

 

Hér má sjá umfjöllun á www.mbl.is:


* mynd með frétt er fengin af vef www.mbl.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?