Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra voru veitt um síðustu helgi en með verðlaununum er vakin athygli á þeim sem leggja sérstakan metnað í fallegt og snyrtilegt umhverfi í sveitarfélaginu.
Skeiðvellir hlutu viðurkenningu fyrir fegursta lögbýlið og tók Katrín Sigurðardóttir við viðurkenningunni.
Viðurkenningu fyrir fegursta garðinn í þéttbýli hlaut Bolalda 1, en þar hafa Friðsemd Hafsteinsdóttir og Jón Thorarensen lagt mikinn metnað í fallegan og vel hirtan garð.
Verðlaun fyrir fegursta umhverfi fyrirtækis hlutu Stracta Hótel, Mosfell og veitingastaðurinn Rótin. Hreiðar Hermannsson tók við viðurkenningunni fyrir þeirra hönd.
Rangárþing ytra óskar verðlaunahöfunum innilega til hamingju og þakkar þeim fyrir þeirra framlag til fallegs og snyrtilegs umhverfis í sveitarfélaginu. Slíkur metnaður er mikilvægur þáttur í að gera sveitarfélagið að aðlaðandi stað fyrir íbúa og gesti.

