Suðurlandsvegur 1–3 á Hellu - Miðjan
Suðurlandsvegur 1–3 á Hellu - Miðjan

Suðurlandsvegur 1–3 hf óskar eftir að ráða drífandi einstakling sem umsjónarmann fasteigna og í ræstingu að Suðurlandsvegi 1-3 (Miðjunni) á Hellu.

Um er að ræða 70-100% starf og er vinnutími sveigjanlegur. Reiknað er með viðveru flesta virka daga og að hluti vinnutímans sé þegar flestar starfsstöðvar í húsinu eru opnar en annars eftir samkomulagi. Einnig er í boði ræstingavakt aðra hverja helgi.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með viðhaldi og umhirðu húss og lóðar og krafa gerð um að starfmaður geti sjálfur sinnt léttu viðhaldi.
  • Umsjón með ræstingu hússins og framkvæmd ræstinga á móti öðru starfsfólki.
  • Umsjón með aðgengismálum, loftræstingu og bruna- og öryggiskerfum.

Kröfur:

  • Laghentur einstaklingur sem getur sinnt minniháttar viðhaldi og ræstingu.
  • Lágmarks tölvukunnátta (tölvupóstur, word, exel).
  • Þarf að geta tjáð sig á íslensku, bæði munnlega og skriflega.
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Klara Viðarsdóttir í síma 8669931 eða á klara@ry.is.

Umsóknarfrestur er til og með 27. mars 2026. Umsókn ásamt ferliskrá berist á klara@ry.is