Þátttakendur í Ungmennaþingi 2026
Þátttakendur í Ungmennaþingi 2026

Gríðarlega vel heppnað ungmennaþing var haldið í Safnaðarheimilinu á Hellu 19. febrúar sl. Myndir neðar í fréttinni

Um 30 ungmenni mættu og tóku þátt í lýðræðislegum umræðum um málefni ungs fólks. Skilaði niðurstöðum úr hópum sem verður unnið úr og Ungmennaráð mun fjalla um á næsta fundi og skila niðurstöðum áfram inn í stjórnkerfið. 

Ungmennin voru alveg til fyrirmyndar í öllum háttum, kurteis við hvort annað og aðra, gengu vel um, voru áhugasöm um málefnin, tóku öll þátt og höfðu skoðanir sem oft voru ólíkar en það var leyst með rökræðum og niðurstöðunni að það er allt í lagi að vera með mismunandi skoðanir.

Ungmennaþingið var haldið að tilstuðlan Ungmennaráðsins sem fór á stórt Ungmennaþing í haust með öllum ungmennaráðum landsins á Hótel Hilton í Reykjavík. 

Dagskráin var eftirfarandi: 

Kynning á viðburðinum og því sem myndi fara fram. Ásamt kynningu á Ungmennaráði og hvaða tilgangi og markmiðum það þjónar. 

Jón G. Valgeirsson sveitastjóri sagði nokkur hvetjandi orð.

Ellert samfélagslögga sagði nokkur hvatningaorð og var með okkur um kvöldið.

Umræður 1, þar sem spurningum var fylgt og meðlimir ungmennaráðs voru hópstjórar og ritarar. 

Matarhlé - Pizzur og gos.

Umræður 2.

Samantekt, áhugaverðustu málefni hvers hóps rædd og svo var spurt og svarað í lokin um hvað sem var.