Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum

Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi.

Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember nk.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur tekið við hlutverki Menningarráðs og Vaxtarsamnings Suðurlands.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:

  • Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi
  • Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi
  • Að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is.  Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt.

Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar og ráðgjöf við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna hér

Uppbyggingarsjóðurinn er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands og er á ábyrgð Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?