Uppgangur í fimleikum hjá Ungmennafélaginu Heklu

Mikill uppgangur er í fimleikum á hjá Ungmennafélaginu Heklu en Ungmennafélagið Hekla festi nýverið kaup á loftdýnu uppá 1.500.000kr sem bætir alla æfingaaðstöðu til muna. Dýnan gerir allar æfingaaðstöðu mun fjölbreyttari og verður spennandi að fylgjast með þróun fimleikastarfs hjá félaginu í framtíðinni. Næsta miðvikudag kl 19:00 verður fimleikasýning í Íþróttahúsinu, hvetjum alla til þess að mæta.

Á hópmyndinni ásamt fimleikastjörnunum er Guðmundur Jónasson formaður Ungmennafélagsins Heklu t.v., Þórhallur Svavarsson t.h. og Erla Sigríður Sigurðardóttir þjálfari.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?