Sindratorfæran 2023
Sindratorfæran 2023

Sindratorfæran fór fram á Laugardaginn og voru 23 keppendur skráðir til leiksframan af leiddi íslandsmeistarinn Haukur Viðar Einarsson á Heklu en eftir að bilanir fóru að segja til sín þá komst Skúli Kristjánsson á Simba fljótt upp í fyrsta sætið og hélt því út keppnina og endaði sem sigurvegari. Geir Evert Grímsson á Sleggjunni kom rétt á eftir Skúla og gat í síðustu braut skotið sér að toppinn, en eftir að hafa ekið yfir tvær stikur í mýrinni og fengið 60 refsistig sigraði Skúli með 51 stigi. Í 3 sæti 8 stigum á eftir Geir kom Ingvar Jóhannesson á Víkingnum en hann keyrði öruggt í gegnum allar brautir sem skilaði honum frábærum árangri. Fyrrum Íslandsmeistari Snorri Þór Árnason á Kórdrengnum náði 4 sæti en hann var að klifra upp stigatöfluna alla keppnina eftir mistök í fyrstu braut þar sem hann fékk fá stig miðað við keppninautana, frábært akstur hjá honum.

Torfæruhald á Hellu hefur verið síðan 1973 og hefur því Flugbjörgunarsveitin á Hellu haldið keppni í 50 ár. Það eru um 100 starfsmenn sem gera þennan 5000 manna viðburð ógleymanlegan fyrir áhorfendur, keppendur og ekki síst þau sjálf.

Hlökkum til að sjá ykkur á Sindratorfærunni 4 maí 2024

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?