Ósk um tilboð í uppsetningu skiltis

Suðurlandsvegur 1-3 hf. auglýsir eftir tilboðum í uppsetningu auglýsingaskiltis við hlið bílaplans fyrir framan Miðjuna. Um er að ræða jarðvinnu, steyptar undirstöður, smíði og frágang skiltins ásamt uppsetningu og fullnaðarfrágangi samkvæmt verklýsingu. Um er að ræða byggingarleyfisskylda framkvæmd, þannig að verktaki þarf að útvega byggingarstjóra ásamt meisturum í verkið.

Frekari gögn og upplýsingar má nálgast hjá Heimi Hafsteinssyni, umsjónarmanni Suðurlandsvegar 1-3 hf. ( 2.hæð Miðjunnar ) S: 780-8833/netfang heimir@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?