Útboð - Brunavarnir Rangárvallasýslu - frágangur

Verkís f.h. Brunavarna Rangárvallasýslu óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.

Um er að ræða fullnaðarfrágang við framtíðar slökkvistöð Brunavarna Rangárvallasýslu á Hellu. Á neðri hæð hússins verður tækjasalur auk snyrtiaðstöðu en á þeirri efri verður starfs­manna­rými auk skrifstofuaðstöðu.

Nokkrar magntölur:

 - Innveggir:                       100 m²

 - Stálsmíði                         1.300 kg

 - Gólffrágangur                  130 m²

 

Heildarverklok eru 15. maí 2020.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 23. desember 2019. Senda skal ósk um gögn á tölvupóstfang verkis.selfoss@verkis.is með nafni fyrirtækis, heimilisfangi og síma. 

Tilboðum skal skila til Verkís hf., Austurvegi 10, 800 Selfossi fyrir kl. 13:00, 21. janúar 2020, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?