Útboð - forsteyptar einingar og burðarvirki leikskóla

Rangárþing ytra auglýsir útboð í framleiðslu forsteyptra eininga og reisingu burðavirkis fyrir 3. áfanga stækkunar skólasvæðisins á Hellu; Leikskólinn Heklukot.

Óskað er eftir tilboðum í framleiðslu og reisingu á forsteyptum einingum í burðarvirki vegna þriðja áfanga stækkunar skólasvæðisins á Hellu.

Verkið felst í að forsteypa einingar og reisa sökkla, útveggi og innveggi ásamt holplötum með ásteypulagi.

Helstu magntölur eru:

Forsteyptar einingar    

Undirstöður

425

Útveggjaeiningar 150+100+70mm

995

Forsteyptur innveggur 150mm

155
Forsteyptur innveggur 170mm

1.520
Forsteyptur innveggur 200mm 

106
Holplötur 265mm þykkar

1.100

 

Verklok eru áætluð í lok ágúst 2026

Útboðsgögn verða afhent frá og með 11. febrúar 2026 og skal senda ósk um útboðsgögn á netfangið tomas@ry.is

Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rangárþings Ytra, eigi síðar en 27. febrúar 2026 kl. 11:00 eða í tölvupósti á netfangið tomas@ry.is og verður niðurstaða kynnt með tölvupósti seinnipart þess dags sem tilboðum er skilað inn.