Nýverið var tilkynnt um haustúthlutun uppbyggingarsjóðs Suðurlands. Fjöldi spennandi verkefna hlaut styrk, þar á meðal tvö sem tengjast okkar sveitarfélagi.
Kórinn Vox Rangárþing hlaut styrk til að setja upp tónleika með fjölbreyttum, rúmlega sextíu manna kór sem samanstendur af fólki á öllum aldri og af ólíkum þjóðernum. Kórinn vinnur með nýja tónlist, frumlegar útsetningar og leikhúslegar aðferðir til að skapa ferska og skapandi nálgun á íslenska kóramenningu.
Frekari upplýsingar um kórinn má finna á Facebook-síðu hans.
Þá hlaut Madalena Abreu styrk fyrir listasmiðju fyrir börn sem hún nefnir „Youth Art Studio“. Námskeiðin hefjast á Hellu á nýju ári og þar fá börnin vikulega leiðsögn í myndasögum, teikningu, mótun, textíl og fleira. Markmið smiðjunnar er að skapa öruggt og skapandi rými þar sem þátttakendur efla sjálfstraust, sjónræna frásögn og samvinnuhæfni.
Frekari upplýsingar um verkefnið má nálgast á Facebook-síðu þess með því að smella hér.
Við óskum þeim velfarnaðar og hlökkum til að fylgjast með framvindu verkefnanna. Þess má geta að Vox Rangárþing fékk einnig styrk úr haustúthlutun Menningarsjóðs Rangárþings ytra.
Alls var 42 milljónum úthlutað og frekari upplýsingar um sjóðinn og styrkþega má finna á heimasíðu Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.