Ágúst Sigurðsson fráfarandi sveitarstjóri og Eggert Valur Guðmundsson oddviti Á-listans.
Ágúst Sigurðsson fráfarandi sveitarstjóri og Eggert Valur Guðmundsson oddviti Á-listans.

Ný sveitarstjórn tekur nú við stjórnartaumum í Rangárþingi ytra en síðasti fundur fráfarandi sveitarstjórnar var s.l. miðvikudag og síðasti vinnudagur Ágústs Sigurðssonar sem sveitarstjóra er í dag 27 maí. Eggert Valur Guðmundsson verðandi oddviti nýrrar sveitarstjórnar átti fund með Ágústi í morgun, færði honum blómvönd og gjöf og þakkaði Ágústi störf í þágu sveitarfélagsins á umliðnum árum.

Ágúst bauð Eggert velkominn til starfa fyrir sveitarfélagið og óskaði honum og nýrri sveitarstjórn velfarnaðar við mikilvæg störf í þágu samfélagsins. Við þetta tækifæri sagði Ágúst: „Ég vil þakka íbúum Rangárþings ytra og öllu starfsfólki sveitarfélagsins fyrir góða viðkynningu á umliðnum árum. Ég hverf nú af þessum vettvangi þess fullviss að framtíðin er afar björt fyrir sveitarfélagið okkar og tækifærin blasa við í öllum áttum. Ég hef búið við þau forréttindi að starfa með góðu fólki sem ber hag samfélagsins fyrir brjósti og fyrir það vil ég þakka. Sveitarfélagið okkar hefur á að skipa framúrskarandi hæfu og drífandi starfsfólki sem ég veit að mun áfram halda þétt utan um alla þætti starfsins á þessum spennandi framfara- og framkvæmdatímum hér í okkar samfélagi“

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri sveitarfélagsins mun gegna starfi staðgengils sveitarstjóra þar til nýr verður ráðinn.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?