Vegagerðin tekur við rekstri almenningssamgangna á landsbyggðinni

Um áramótin runnu út samningar á milli SASS og Vegagerðarinnar um almenningssamgöngur á Suðurlandi. Hefur því Vegagerðin, fyrir hönd ríkisins, tekið formlega við rekstrinum frá og með 1. janúar 2020.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður þjónustan með óbreyttu sniði árið 2020 en áréttað hefur verið við stofnunina að mikilvægt sé að sveitarfélögin á Suðurlandi komi áfram að ákvörðunum varðandi þörf og leiðarval í landshlutanum.

Áfram verður boðið upp á nemakort fyrir þá sem sækja nám á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingar um hvernig sótt er um nemakortin má finna á heimasíðu Strætó, sbr. slóðina: https://www.straeto.is/is/upplysingar/landsbyggdin/nemakort-a-sudurlandi en gjaldið er óbreytt eða kr. 90.000 á önn.

Samhliða því að Vegagerðin sinnir daglegum rekstri er stofnunin með í undirbúningi útboð á akstursþjónustunni og gert er ráð fyrir að nýr samningur við akstursaðila taki gildi frá og með 1. janúar 2021.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?