Vegur 208 í Landmannalaugar opinn

Vegagerðin hefur opnað veg 208 í Landmannalaugar í Friðland að Fjallabaki en aðrir vegir á svæðinu eru enn lokaðir. Nánast allur snjór er farinn af svæðinu og jarðvegur nokkuð þurr. Opnað er óvenju snemma í Landmannalaugar í ár, eða rúmum tveimur vikum fyrr en árið 2018 þegar opnaði 11. júní. Umhverfisstofnun vill árétta að gróður og jarðvegur er sérstaklega viðkvæmur á þessum árstíma og því mikilvægt að einungis sé gengið á göngustígum eins og reglur kveða á um.

Ýmsar gönguleiðir í Landmannalaugum eru lokaðar vegna aurbleytu og verða ekki opnaðar fyrr en frost er farið úr jörðu og svæðið hefur náð að þorna. Gönguleiðin um Laugahraun og Grænagil, svokallaður Laugahringur er opin, en þó ber að varast einstaka snjóskafla í hrauninu við Grænagil sem geta gefið eftir þegar gengnið er á þeim. 

Vegur F208 um Fjallabak niðra og vegur F225 Dómadalsleið  verða lokaðir eitthvað áfram og einnig vegur að Ljótapolli. Talsvert hefur borið á því að ekið er inn á vegi þar sem akstursbann er í gildi og vill Umhverfisstofnun árétta að það er brot á lögum. Ástæða lokananna er ýmist vegna aurbleytu á einstaka köflum á vegum, vegir í sundur eða vegna viðkvæms ástands náttúru. Umhverfisstofnun biður því ferðaþjónustufyrirtæki og gesti að sýna biðlund og leyfa náttúrunni að njóta vafans. 

Ferðafélag Íslands hefur opnað þjónustu sína í Landmannalaugum og landverðir Umhverfisstofnunar komnir til starfa og mun þeim fjölga eftir því sem líður á sumarið. Nánari upplýsingar í síma: 591 2000 eða netfang: fjallabak.ranger@ust.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?