Skáksveit Grunnskólans á Hellu vann sigur í eldri flokki.
Skáksveit Grunnskólans á Hellu vann sigur í eldri flokki.

Suðurlandsmót grunnskóla í skák fór fram í dag, mánudaginn 1. mars, í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Mótið er sveitakeppni fyrir grunnskóla á Suðurlandi. Að þessu sinni var þátttaka í mótinu með allra besta móti en tæplega 100 keppendur tóku þátt fyrir hönd 7 grunnskóla. Grunnskólinn í Vestmannaeyjum var einnig skráður til leiks en vegna óhagstæðrar vindáttar var ekki siglt til Landeyjahafnar um morguninn og þ.a.l. gat hann ekki mætt til leiks.

Teflt var í tveimur flokkum. Annars vegar í 1.-7. bekk og hins vegar í 8.-10. bekk, voru 4 nemendur í hverri sveit. Gauti Páll Jónsson, fultrúi Skáksambands Íslands, var mótsstjóri og gekk mótið afar hratt og vel fyrir sig undir hans stjórn. Sá hann einnig um að afhenda veglega verðlaunagripi til sigurvegarana í mótslok.

Spennan var þónokkur um verðlaunasæti en svo fór að lokum að a-sveit Flúðaskóla sigraði í yngri flokknum en Grunnskólinn á Hellu í þeim eldri. Aðeins munaði einum vinning á 1. og 2. sæti í báðum flokkum. Flúðaskóli nældi sér í brons í báðum flokkum og náði sér þar með í fjögur af þeim sex verðlaunum sem í boði voru.

Frétt þessi birtist á www.dfs.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?