Vel heppnuð ganga með Ferðafélagi rangæinga

Ferðafélag rangæinga stóð fyrir skemmtilegri fjölskyldugöngu í tilefni Töðugjaldanna, þar sem gengið var frá Þingskálum að Aftökugili og þaðan að hátíðarsvæði Skógræktarfélags Rangæinga í Bolholtsskógi þar sem boðið var upp á grillaðar pylsur og drykki.

Á fjórða tug göngugarpa lögðu land undir fót í þessari göngu sem var, að sögn þátttakenda, hin besta afþreying en þau Sigríður og Viðar á Kaldbak stýrðu göngunni og sögðu gestum frá sögu þess fornfræga og merka svæðis sem gengið var um. 

Meðfylgjandi eru myndir úr göngunni sem Ösp Viðarsdóttir tók.

Smelltu hér til að skoða myndirnar.