Byggðasamlag Odda bs. auglýsir eftir öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra fræðslumála í 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða faglega og rekstrarlega stjórnun skólamála
- Umsjón með fjárhagsáætlunum, mannauðsmálum og rekstri skólanna í samstarfi við hlutaðeigandi
- Eftirlit og yfirsýn í skólamálum, m.a. með mótun verkferla og fjárhagslegu eftirliti
- Framkvæmd, eftirlit og yfirsýn fræðslumála, m.a. framkvæmd samninga, laga og reglugerða um leik- og grunnskóla
- Tryggja virkt samstarf við ríkisstofnanir, önnur sveitarfélög og helstu hagsmunaaðila
- Undirbúningur mála til umfjöllunar á fundum byggðasamlagsins og víðar
- Þátttaka í starfi, fundum og teymisvinnu er tengjast málefnum barna, foreldra og skóla
- Samhæfing og stuðningur við faglegt starf leik- og grunnskóla
- Vinna markvisst að gæðastjórnun og starfsþróun í skólum Odda bs.
- Styðja við innleiðingu farsældarlaganna í skólunum
- Önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra og stjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Reynsla af stjórnun, stefnumótun og mannauðsmálum er æskileg.
- Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga og starfsvæðinu er kostur
- Greiningarfærni og reynsla af gerð fjárhagsáætlana er skilyrði
- Góð fagþekking, m.a. á lögum og reglum um málefni barna og skóla er kostur
- Frumkvæði og hæfni til að leiða verkefni og breytingar
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð tölvukunnátta, m.a. færni í vinnslu gagna og notkun upplýsingakerfa
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð málakunnátta, a.m.k. í íslensku og ensku
Byggðasamlag Odda bs. er byggðasamlag sem sér um rekstur leik- og grunnskóla Ásahrepps og Rangárþings ytra. Um er að ræða Leikskólann Laugalandi, Leikskólann Heklukot, Grunnskólann Hellu og Laugalandsskóla. Fjöldi nemenda í heildina eru 400 talsins og starfsmenn rúmlega 140. Sveitarfélögin líta á hvern skóla sem sjálfstæða einingu en eru með sameiginlega skólastefnu sem nær til beggja skólastiga. En einkunarorð stefnunar eru Göngum glöð til verka.
Mikil uppbygging er á svæðinu en hafin er markviss uppbygging á endurbótum leik- og grunnskóla á Laugalandi. Nýlega var 2. áfangi nýbyggingu Grunnskólans á Hellu tekin í notkun þar sem öll vinnuaðstaða er til fyrirmyndar. Verið er að byggja nýjan 8 deilda leikskóla á Hellu og verður nýi leikskólinn undir sama þaki og grunn- og tónlistarskólinn.
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is
Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is