Vetraráætlun Strætó á Suðurlandi

Þann 13. september 2015 mun ný vetraráætlun Strætó taka gildi á Suðurlandi.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

 Leið 51

  • Ekur einu sinni á dag til og frá Höfn í Hornafirði
  • Ferð kl. 18:40 frá Hvolsvelli til Selfoss á þriðjudögum og fimmtudögum færist til kl. 15:45 á þriðjudögum og föstudögum.?
  • Ferð kl. 17:50 frá FSU til Hvolsvallar á þriðjudögum og fimmtudögum færist til kl. 15:50 á þriðjudögum og föstudögum.?
  • Fjölgar um eina ferð til og frá Selfossi á sunnudögum.

 Leið 52?

  • Mun passa við áætlun Herjólfs í öllum ferðum alla daga.

 Leið 72?

  • Ferð kl. 17:47 frá Selfoss – N1 á þriðjudögum og fimmtudögum færist til kl 14:50 á þriðjudögum og föstudögum.?
  • Ferð kl. 16:02 frá Selfossi – N1 einungis ekin mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.

 Leið 74

  • Ferðir kl. 16:00 og 17:45 frá Selfossi – N1 til Þorlákshafnar einungis eknar mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
  • Í staðinn bætast við ferðir kl. 14:50 og 16:20 frá Selfossi – N1 til Þorlákshafnar á þriðjudögum og föstudögum.
  • Ferðir kl. 16:45 og 18:30 frá Þorlákshöfn til Selfoss einungis eknar mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga
  • Í staðinn bætast við ferðir kl. 15:35 og 17:05 frá Þorlákshöfn á þriðjudögum og föstudögum.

 Leið 75

  • Í ferðum kl. 14:00 og kl. 19:19 frá Selfossi – N1 verður ekið fyrst á Eyrarbakka, svo Stokkseyri í stað fyrst á Stokkseyri, svo Eyrarbakka.
  • Biðstöðin við Litla-Hraun á leiðum 74 og 75 bætist við tímatöflu og leiðavísi.

 Nánari upplýsingar á strætó.is og í síma 540 2700?

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?