Við fögnum fjölbreytileikanum

Þessa dagana fara fram Hinsegin dagarnir sem haldnir eru hátíðlegir með hinum ýmsu viðburðum á höfuðborgarsvæðinu. 

Nú flöggum við í Rangárþingi ytra í tilefni hinsegin daganna, fögnum fjölbreytileikanum og minnum okkur á að allar manneskjur eiga rétt á að njóta sömu mannréttinda án tillits til uppruna þeirra, þjóðernis, litarháttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, aldurs, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar ómálefnalegrar stöðu.

Við hvetjum íbúa Rangárþings ytra til þess að tileinka sér áfram umburðalindi og að sýna samfélagslega ábyrgð – þannig gerum við samfélagið okkar enn sterkara!

Nánari upplýsingar um hinsegindaga má nálgast á www.hinsegindagar.is 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?