Viðbragðsáætlun sveitarfélagsins vegna COVID-19

 

Sem kunnugt er hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónaveiru (COVID-19).
Sveitarfélagið Rangárþing ytra hefur uppfært sína viðbragðsáætlun sem er að finna hér á heimasíðu sveitarfélagsins. Þessi viðbragðsáætlun á að þjóna þeim tilgangi að vera stjórnendum sveitarfélagsins til stuðnings um það hvernig takast eigi á við afleiðingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi og/eða eignum.
Áætlun þessi gildir fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess en skólarnir, íþróttamiðstöð, þjónustumiðstöð og skrifstofa hafa sett sér sínar eigin áætlanir og útfæra nánar viðbrögð eftir eðli starfsemi hverju sinni. Ábyrgð á viðbragðsáætlun er á höndum sveitarstjóra og viðkomandi forstöðumanna.
Viðbragðsáætlun þessi hefur þegar verið virkjuð og viðbragðsteymi sveitarfélagsins hefur tekið til starfa.

Hér er slóð á viðbragðsáætlun sveitarfélagsins.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?