18. ágúst 2026
Rarik hefur tilkynnt um fyrirhugaða viðgerð á skemmdum jarðstreng í gili við Snjóöldu, beint á móti Ónýtafelli.
Strengurinn hefur komið upp úr jarðvegi á um 30 metra kafla vegna úrrennslis af völdum aurs og krapaflóðs.
Veiðiverðir á svæðinu eru vel upplýstir um ástandið og fyrirhugaðar framkvæmdir.
Ein beltavél verður notuð við verkið til að lagfæra strenglögnina og ganga frá rofsvæðinu.
Áætlað er að framkvæmdirnar fari fram síðari hluta ágústmánaðar.