Viðhald á Landvegi frá 9. apríl

Fyrirhugað er að fara í viðhaldsframkvæmdir á um 2 km kafla á Landvegi frá Kelduholti og norður fyrir afleggjara að Holtsmúla.

Áætlað er að hefja framkvæmdir nk. fimmtudag 9. apríl og að þeim ljúki um tveimur vikur síðar. Á meðan skipt verður um ræsi á kaflanum er fyrirhugað að loka veginum fyrir almennri umferð og verður hjáleið þá um Bjallaveg/Árbæjarveg. Reiknað er með að byrjað verði á endurgerð ræsis og kaflanum því lokað á fimmtudag. Aðra daga verður umferð hleypt um framkvæmdasvæðið en hraði tekinn niður en þó má reikna með lokun aftur þegar unnið verður að lögn klæðingar.

Framkvæmdaraðili verður Þjótandi ehf. og bera þeir ábyrgð á vinnusvæðamerkingum.