26. maí 2026
Ungt fólk á aldrinum 18–30 ára hefur nú tækifæri til að sækja um þátttöku í norræna ungmennamótinu Generation Nordic 2026 sem fram fer í Færeyjum dagana 12.–15. september 2026. Markmið mótsins er að leiða saman ungt fólk alls staðar að af Norðurlöndum til að ræða framtíð samfélaga á Norðurlöndum með áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og samstarf þvert á landamæri. Á dagskrá verða meðal annars fyrirlestrar, vinnustofur og hópverkefni þar sem þátttakendur fá tækifæri til að deila hugmyndum, mynda tengslanet og taka þátt í umræðum um sameiginlegar áskoranir Norðurlanda. Þá gefst þátttakendum einnig kostur á að kynnast náttúru og menningu Færeyja.