Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararfleifð auglýsir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins.

Markmið styrkjanna er að stuðla að fjölbreyttu viðburðahaldi í sundlaugum um allt land. Viðburðunum er ætlað hvoru tveggja að vekja athygli á sundlaugamenningu og auðga menningarlíf í heimabyggð og nærumhverfi. Viðburðir skulu fara fram á árinu 2026.

Sveitarfélagið kallar eftir hugmyndum og samstarfi við áhugasama aðila eða hópa sem vilja halda viðburð í sundi. Fyrirkomulagið yrði þannig að sveitarfélagið myndi halda utan um styrkumsóknina og nauðsynlegt er að allt skipulag fari fram í samráði við forstöðumann íþróttamannvirkja.

Áhugasöm geta sent inn hugmyndir fyrir 16. mars á osp@ry.is.

Nánar má lesa um styrkinn á vef stjórnarráðsins með því að smella hér.