Viltu koma fram eða halda viðburð á Töðugjöldum 2024?

Töðugjöld verða haldin að venju í ágúst og nú er verið að undirbúa og bóka atriði. Útlit er fyrir fjölbreytta og skemmtilega dagskrá sem sífellt bætist við.

Okkur langar að auglýsa sérstaklega eftir áhugasömum aðilum úr heimabyggð sem langar að koma fram eða halda viðburð á tímabilinu 12.–18. ágúst n.k. í tengslum við Töðugjöld.

Við leitum bæði að listafólki til að koma fram á barnadagskrá og kvöldvöku 17. ágúst sem og viðburðum innan sveitarfélagsins í Töðugjaldavikunni.

Fjölbreytni er fagnað og hvort sem um er að ræða listir, menningu, handverk, íþróttir eða annað viljum við endilega heyra frá ykkur!

Áhugasöm geta haft samband við Ösp, markaðs- og kynningafulltrúa, á osp@ry.is eða í síma 8607631

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?