Vinnuskólinn 2026 - opið fyrir umsóknir

Nú er hægt að sækja um í vinnuskóla Rangárþings ytra fyrir árganga 2010-2013 sumarið 2026 með því að fylla út þetta eyðublað.

Starfstímabilið verður frá 1.–30. júní hjá árgangi 2013 og frá 1. júní til 31. júlí hjá árgöngum 2010 2011 og 2012.

Vinnutíminn hjá árgangi 2013 verður frá kl. 8–12 en frá kl. 8–15 hjá þeim sem eldri eru.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026.

Reglur vinnuskólans má nálgast hér og mikilvægt er að foreldrar/forsjáraðilar kynni sér þær vel og fari yfir með krökkunum.

Kynningarfundur fyrir umsækjendur og foreldra/forsjáraðila verður haldinn í lok maí og verður auglýstur þegar nær dregur.