Yngvi Karl Jónsson
Yngvi Karl Jónsson

Yngvi Karl Jónsson er 58 ára og er starfandi náms- og starfsráðgjafi hjá Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Hann er fæddur og uppalinn fyrstu árin á Torfastöðum í Fljótshlíð en bjó síðar á Hvolsvelli og í Hveragerði auk þess sem hann dvaldi við nám og störf í Bandaríkjunum um árabil. Yngvi Karl býr nú á Hellu með fjölskyldu sinni. Yngvi Karl er með BA í sálfræði og MA í ráðgjöf frá UNC-háskólanum í Charlotte í Norður-Karólínu auk meistaragráðu í kennslufræðum frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur sinnt kennslu í grunnskólunum í Hveragerði, Eyrarbakka og Stokkseyri og Hvolsvelli. Hann veitti forstöðu meðferðarheimili Barnaheilla á Geldingalæk um árabil og var árið 2010 ráðinn af Barnaverndarstofu til að setja á stofn meðferðarheimilið Lækjarbakka og var þar forstöðumaður til ársins 2020. Hann hefur einnig starfað sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og stýrt félagsmiðstöðvum. Þá hefur Yngvi Karl sinnt íþróttaþjálfun meðfram öðrum störfum alla tíð auk þess sem hann hefur verið virkur í sveitarstjórnarmálum.

Starfið var auglýst í Morgunblaðinu, Dagskránni og Búkollu og á heimasíðum Rangárþings ytra og Ásahrepps í mars 2021 með umsóknarfrest til 9. apríl 2021. Umsækjendur voru 6 talsins. Umsóknir voru flokkaðar með tilliti til þess hversu vel umsækjendur uppfylltu menntunar- og hæfniskröfur og ljóst að mjög góðar umsóknir lágu fyrir. Í auglýsingu um starfið var tekið fram að leitað væri eftir einstaklingi sem væri tilbúinn til að ganga glaður til verka og leiða af dugnaði öflugt skólasamfélag með samstöðu og árangur að leiðarljósi. Jafnframt var lagt upp úr því að nýr skólastjóri væri tilbúinn að viðhalda þeim góða skólabrag sem einkennt hefur starf Laugalandsskóla. Gerðar voru þær menntunar- og hæfniskröfur að umsækjandi hefði leyfisbréf sem grunnskólakennari og byggi að farsælli kennslureynsla í grunnskóla. Þá þyrfti umsækjandi að hafa framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða og/eða búa að farsælli stjórnunarreynslu. Önnur atriði sem lögð voru til grundvallar voru færni og reynsla í starfsmannastjórnun, stefnumótun og áætlanagerð og hæfni í samskiptum. Þá var reynsla í fjármálastjórnun talinn kostur.
Ákveðið var í stjórn Odda bs að fela eftirtöldum að taka viðtöl við umsækjendur: Björk Grétarsdóttir oddviti Rangárþings ytra og formaður stjórnar Odda bs, Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra og framkvæmdastjóri Odda bs, Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti Ásahrepps og stjórnarmaður í Odda bs og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir stjórnarmaður í Odda bs og sveitarstjórnarfulltrúi í Rangárþingi ytra. Umsækjendur mættu til viðtals á Hellu dagana 20-21 apríl 2021 og hvert viðtal tók allt að 1 klst.


Það var samdóma álit þeirra sem viðtölin tóku að hæfastur til að gegna starfinu væri Yngvi Karl Jónsson. Haft var samband við samstarfsaðila úr fyrri störfum og fékk hann góða umsögn þar til að gegna starfi skólastjóra.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?