Hella úr suðri, Faxa- og Sleipnisflatir eru hægra megin, neðarlega.
Hella úr suðri, Faxa- og Sleipnisflatir eru hægra megin, neðarlega.

Íbúar í Rangárþingi ytra hafa lengi kallað eftir lágvöruverslun á Hellu enda er það þjónusta sem myndi gagnast öllum íbúum og þeim fjölmörgu gestum sem fara um svæðið.

Byggðarráð hefur falið skipulags- og umferðarnefnd að koma með tillögur að hentugum lóðum undir lágvöruverslun og gera tillögu að nauðsynlegri skipulagsvinnu.

Í bókun fulltrúa Á-listans um málið kemur fram að mikilvægt sé að bregðast tímanlega við vaxandi eftirspurn eftir lóðum fyrir verslun- og þjónustu í sveitarfélaginu. Mikil og vaxandi þörf sé á lágvöruverðsverslun sem nýtist bæði íbúum og gestum. Aukið álag vegna mikillar umferðar, umfangsmikilla virkjanaframkvæmda og annarrar uppbyggingar á svæðinu geri það að verkum að skynsamlegt sé að hefja skipulagsvinnu sem fyrst.

Í bókun fulltrúa D-lista kemur fram að liðka þurfi til svo hægt verði að reka lágvöruverslun á Hellu enda allar forsendur fyrir hendi. Á nýju atvinnusvæði sunnan Suðurlandsvegar séu t.d. fjölmargar lóðir sem vel gætu hentað fyrir slíka starfsemi.

Hér vísar fulltrúi D-lista til Faxa- og Sleipnisflata sem eru nýjar lóðir sunnan Suðurlandsvegar, andspænis Reykjagarði.

Bókanirnar má lesa í heild sinni í fundargerð byggðarráðs frá 25. júní undir 2. lið með því að smella hér.