Ársreikningur 2024 samþykktur í sveitarstjórn

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2024 var staðfestur af byggðaráði miðvikudaginn 9. apríl 2024 og lagður fyrir sveitarstjórn. Hann var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar miðvikudaginn 9. apríl 2024 og til seinni umræðu á fundi sveitastjórnar 14. maí 2024 þar sem hann var samþykktur samhljóða.

Rekstrartekjur A og B hluta á árinu námu 3.859 milljónum kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 376 milljónir kr. en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 338 milljónir kr. Samtals eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2024 nam 3.731 milljónum kr.

Niðurstaða ársreiknings sýnir að rekstur sveitarfélagsins stendur traustum fótum og styður vel við þær miklu framkvæmdir sem sveitarfélagið stendur í.

Sveitarstjórn þakkar starfsfólki sveitarfélagsins fyrir góða vinnu við rekstur innan ramma fjárhagsáætlunar sem skilar sér í bættri afkomu.

Nánari upplýsingar má finna í fundargerð.

Ársreikninginn má nálgast hér.