Auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar í Rangárþingi ytra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.

Hagi 2 og Teigsholt, breyting á landnotkun lóðar í aðalskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13.4.2022 að gerð verði nauðsynleg breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem landnotkun nýrrar lóðar verði breytt úr frístundanotkun í landbúnaðarnot að nýju. Um fasta búsetu verður að ræða auk lítilsháttar ferðaþjónustu. Sveitarstjórn staðfesti ákvörðun sína í skipulagsferli málsins á fundi 14.1.2026.

Breytingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu, hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Har. Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra