Mynd: Rangárbakkar
Mynd: Rangárbakkar

Sveitarfélagið Rangárþing ytra auglýsir nýjar hesthúsalóðir við Ómsvelli og Vigdísarvelli lausar til úthlutunar á hesthúsasvæðinu á Rangárbökkum á Hellu. Lóðirnar eru staðsettar austan við reiðhöllina á nýskipulögðu svæði og tengist núverandi hverfi vestan þeirra. Um eru að ræða alls 10 lóðir sem nú eru auglýstar. Umsækjendur sem hyggjast reka hestaleigu njóti forgangs við úthlutun lóða við Ómsvelli 1 – 3 sökum góðrar staðsetningar hennar gagnvart reiðleiðum inn og út úr hverfinu.

Öllum lóðum við Orravelli og Sæluvelli hefur verið úthlutað og framkvæmdir í undirbúningi hjá lóðahöfum. Mikill áhugi er því fyrir hinu nýja hesthúsasvæði á Rangárbökkum.

Deiliskipulag svæðisins má nálgast hér.

Gatnagerð og undirbúningur á svæðinu mun hefjast á næstu vikum.

Umsóknir þurfa að berast a.m.k. fjórum dögum fyrir fundi Byggðaráðs (næsti fundur verður haldinn fimmtudaginn 24. mars). Við úthlutun gilda úthlutunarreglur sveitarfélagsins sem nálgast má á heimasíðu sveitarfélagsins eða með því að smella hér.

Umsóknir fara fram í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins á umsóknarsíðu eða í gegnum viðkomandi lóð á kortasjá sveitarfélagsins, https://www.map.is/ry/ en þar verður hægt að sjá allar nauðsynlegar upplýsingar um allar lausar lóðir á Hellu um miðja næstu viku.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Sveitarstjóra eða Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti agust@ry.is eða birgir@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?